Samþætting almennra námsgreina við upplýsingatækniÞessi síða inniheldur ýmsan fróðleik varðandi upplýsingatæknikennslu í grunnskólum. Í byrjun er hugsunin að setja inn hugmyndir að verkefnum sem hægt er að samþætta við upplýsingatækni. Einnig verða einföld kennslumyndbönd sett inn á hana og tenglar inn á önnur kennslumyndbönd. Þessi síða er hugsuð fyrir almenna grunnskólakennara sem og upplýsingatæknikennara í grunnskólum.
Uppsetning síðunnarSíðan er þannig uppsett að ef farið er inn á síðu sem er t.d. merkt Heimasíðugerð, koma undirsíður með smá kennsluleiðbeiningum um nokkur forrit sem hægt er að nota við heimasíðugerð. Þar undir koma hugmyndir að verkefnum í hinum ýmsu greinum og svo er ein síða þar sem kennarar geta sett fram skoðanir sínar á því hvernig gekk að leggja verkefnið fyrir og hvað mætti betur fara.
Hugmyndin með þessu er sú að kennarar sem ekki hafa mikinn tölvugrunn, sem og almennir upplýsingatæknikennarar, geti hér fengið hugmyndir og léttar kennsluleiðbeiningar að verkefnum. Þeir geta deilt reynslu sinni manna á milli og þannig lært hver af öðrum. Ef vel tekst til ætti síðan að taka stöðugum breytingum í takt við ferskar hugmyndir frá notendum síðunnar. Vefsíða í stöðugri endurskoðunÞað sem hér kemur fram er að sjálfsögðu ekki tæmandi listi yfir þá möguleika sem samþætting upplýsingatækni við almennar námsgreinar býður upp á og ómögulegt að gera þannig síðu, en með því að hljálpast að geta kennarar gert síðuna betri og um leið hjálpað hver öðrum að gera námið skemmtilegra og árángursríkara fyrir nemendur og kennara.
Þessi síða er unnin á vordögum 2013 á námskeiðinu Margmiðlun til náms og kennslu. Umsjónamaður með síðunni er Valdís Arnarsdóttir og eru allar ábendingar um efni síðunnar kærkomnar og hægt að senda þær á netfangið [email protected] |