Ýmis verkefni
Hér á þessari síðu verða hugmyndir að verkefnum þar sem hinar ýmsu námsgreinar eru samþættar við upplýsingatækni og verkefni unnin með því að gera heimasíðu.
Þegar nemendur gera heimasíðu er hægt að samþætta það við nánast allar námsgreinar. Tíminn sem fer í heimasíðugerðina getur verið mismunandi. Það fer að sjálfsögðu eftir aldri nemendahópsins og tölvufærni þeirra. En nemendur á miðstigi eiga auðveldlega að geta gert heimasíðu um afmarkað efni.
Vefsíðuforritin eru mismunandi flókin og mæli ég með því að nota weebly.com fyrir byrjendur í heimasíðugerð og svo er hægt að kynna fleiri möguleika fyrir nemendum sem eldri eru. Þau þrjú vefsíðuforrit sem hér er talað um eru ekki einu möguleikarnir sem hægt er að fara og gott ef kennarar koma með hugmyndir að nýjungum á umræðusíðunni sem hér er.
Til að svona verkefni takist þarf kennarinn ekki að vera sérfræðingur og allt í lagi að kunna ekki allt. En að sjálfsögðu þurfa kennarar að gefa sér smá tíma í að kynnast því forriti sem þeir ætla að kynna fyrir nemendum sínum áður en þeir hefjast handa. Allt sem þarf er jákvæðni og vilji og þá tekst allt með dyggri hjálp frá nemendum.

Verkefni 1
Heimasíðugerð - einstaklingssíður - landafræði
Nemendur gera heimasíðu um það efni sem þau eru að læra um. Til dæmis er hægt að gera síðu um norðurlöndin, evrópu eða hvað sem er. Í byrjun er gott að reikna með ca. tveimur kennslustundum í að stofna síðuna og byrja að velja og hanna útlit á hana. Svo er hægt að hefjast handa við að setja efni inn á síðuna eftir því sem við á.
Hér má sjá dæmi um síðu sem er í vinnslu í Hlíðaskóla um norðurlöndin.
Þetta er dæmi um landafræði en að sjálfsögðu er hægt að nota hvaða fag sem er og um að gera að leyfa hugmyndafluginu að njóta sín þegar verkefnin eru skipulögð.

Verkefni 2
Heimasíðugerð - sameiginleg síða bekkjar
Nemendur geta verið að vinna að sameiginlegu verkefni, t.d. þemaverkefni um sína heimabyggð eða hvað sem er. Þeim er skipt upp í hópa og eru að vinna að mismunandi upplýsingaöflun og verkefnum tengdu námsefninu. Kennarinn stofnar eina sameiginlega síðu, og hóparnir setja svo inn efni á síðuna þegar þeir eru tilbúnir með sínar úrlausnir.
Hér má sjá dæmi um sameiginlega síðu bekkjar sem unnin var í 6. bekk í Kársnesskóla.