Verkefni - stuttmyndagerð
Hér á þessari síðu verða hugmyndir að verkefnum þar sem hinar ýmsu námsgreinar eru samþættar við upplýsingatækni og verkefni unnin með því að gera stuttmyndir.
Þegar nemendur gera stuttmynd er hægt að samþætta það við nánast allar námsgreinar. Tíminn sem fer í stuttmyndagerðina getur verið mismunandi. Það fer að sjálfsögðu eftir aldri nemendahópsins og tölvufærni þeirra. En nemendur á miðstigi eiga auðveldlega að geta gert stuttmynd um afmarkað efni.
Þau forrit sem hér eru kynnt eru annars vegar Movie Maker fyrir PC og hins vegar iMovie fyrir MAC.
Til að svona verkefni takist þarf kennarinn ekki að vera sérfræðingur og allt í lagi að kunna ekki allt. En að sjálfsögðu þurfa kennarar að gefa sér smá tíma í að kynnast því forriti sem þeir ætla að kynna fyrir nemendum sínum áður en þeir hefjast handa. Allt sem þarf er jákvæðni og vilji og þá tekst allt með dyggri hjálp frá nemendum.
Að glæða námsefnið lífi með stuttmyndagerð er frábær leið til að gera það áhugaverðara fyrir nemendur. Auðveldlega er hægt að búa til stuttmyndir úr hinum ýmsu bókmenntaverkum sem nemendur lesa, eins og til dæmis Korku sögu, Gísla sögu og fleiri sögum. Einnig er hægt að tengja það við stærðfræði, tungumál og í raun hvað sem er.