Skratch
Ein af þeim leiðum sem hægt er að fara þegar kenna á forritun er að kenna á Skratch. Þegar kenna á forritun í Skratch þarf kennarinn fyrst að gefa sér svolítinn tíma í að kynna sér forritið og læra aðeins á það. Í fyrstu getur það litið út fyrir að vera svolítið erfitt en ef maður gefur sér smá tíma í það þá kemur grunnfærnin fljótt. Hér fyrir neðan eru tenglar inn á tvær síður með góðum kennslumyndböndum og leiðbeiningum í Skratch, bæði á íslensku og ensku.
Á þessari síðu má finna ýmislegt um forritið Scratch sem er forritunarmál sérstaklega ætlað fyrir börn á aldrinum 8 -16 ára. Þetta er ókeypis forrit sem hægt er að hlaða beint niður af þessari síðu. Síðan er í raun lítið Scratch samfélag þar sem hægt er að skrá sig inn og deila verkefnum sínum með öðrum. Einnig er þar hægt að hlaða niður verkefnum annara. Forritið er á íslensku. Kennslumyndbönd og leiðbeiningar er að finna á þessari síðu og eru þær á ensku. Scratch er flott forrit sem tilvalið er að kenna á yngsta og miðstigi grunnskóla.
Stefjur er síða sem Salvör Gissurardóttir lektor við Háskóla Íslands heldur úti og er hún með ýmsum leiðbeiningum fyrir þá sem vilja læra á Scratch. Á þessari síðu er að finna nokkur kennslumyndbönd sem Salvör hefur gert og eru þau á íslensku. Einnig eru á henni ýmislegt kennsluefni á pdf skjölum en þau eru á ensku. Þetta er góð síða fyrir kennara til að læra og æfa sig á Scratch áður en farið er af stað með nemendum.